Heilfóður (e. complete and balanced)
Allur blautmatur frá Taste of the Wild er „Complete and Balanced“ sem þýðir að þú gætir fóðrað hundinn einungis á blautmatnum og um leið verið viss um að hann fái öll þau næringarefni sem hann lífsnauðsynlega þarf á að halda til að viðhalda næringarlegu jafnvægi til lengri tíma.
Blautmaturinn frá Taste of the Wild inniheldur kjöt, grænmeti og ávexti í vísindalega rannsökuðum hlutföllum og færir hundinum þannig prótein, fitu, kolvetni, andoxunarefni, vítamín trefjar, steinefni og allt sem hann þarf. Þess vegna er allur blautmatur frá Taste of the Wild svokallað heilfóður.
Alvöru nautakjöt, grænmeti, baunir og ávextir!
Southwest Canyon er með alvöru nautakjöti og ómótstæðilegu bragði. Maturinn inniheldur einnig baunir, grænmeti og ávexti og veitir andoxunarefni, vítamín, trefjar og steinefni til að stuðla að góðri heilsu, heilbrigðum feld og næringarlegu jafnvægi.
Frábær lystaukandi viðbót við þurrmatinn
Taste of the Wild blautmatur er frábær viðbót við þurrmatinn. Ef þú bleytir þurrmatinn með blautmatnum munu jafnvel mestu gikkirnir borða þurrmatinn með bestu lyst.