Fóður í áskrift
Minna vesen. Meiri sparnaður.

Byrjum á rétta fóðrinu
Veldu fóður og magn og sjáðu verðáætlun áður en þú skráir þig. Við staðfestum áætlunina með þér áður en áskriftin hefst.
Áskrift fyrir hund Áskrift fyrir köttErtu þegar í áskrift?
Skoðaðu áskriftina þína, sendingar og stöðu beiðna á einum stað.
Opna mína áskriftHvernig virkar áskriftin?
Veldu fóður
Veldu dýrategund og fóður sem hentar í skráningarforminu. Hafðu samband ef þú vilt aðstoð við valið.
Stilltu magn og tíðni
Segðu okkur hversu mikið fóður þú notar og skoðaðu verðáætlunina áður en þú sendir skráninguna.
Við staðfestum með þér
Við förum yfir fóður, magn, sendingartíðni og afhendingu með þér áður en áskriftin hefst.
Greiddu í heimabanka
Þú færð greiðsluseðil í heimabanka fyrir sendinguna.
Við undirbúum sendinguna
Þegar greiðsla hefur borist fer sendingin í afgreiðslu samkvæmt staðfestri áætlun.
Minna vesen. Meiri sparnaður.
Fáðu 10% afslátt af þurrfóðri og 15% afslátt af blautmat, nammi og fæðubótaefnum sem fylgja áskriftinni. Með hverri nýrri áskrift fylgir glaðningur að verðmæti 5.000 kr.
Afhending sem hentar þér
Ekkert þyngdarlágmark gildir. Afhendingarkjör ráðast af mánaðarvirði fóðursins eftir áskriftarafslátt. Við viðeigandi viðmið fæst frí afhending á afhendingarstað eða frí heimsending þar sem hún er í boði. Undir viðmiði fyrir fría afhendingu staðfestum við sendingarkostnað með þér. Þú sérð gildandi viðmið í skráningarforminu.
Þú getur óskað eftir að breyta, fresta eða hætta áskrift á Mínni áskrift, eða haft samband við okkur. Við staðfestum breytingarnar með þér.
Skoða fóður og afhendingarkjör