Taste of the Wild Senior Pate - Kjúklingur 85g
Fara beint í vöruupplýsingar
1 af 5

Taste of the Wild

Taste of the Wild Senior Pate - Kjúklingur 85g

Taste of the Wild Senior Pate - Kjúklingur 85g

465 kr.

547 kr. / 100 g

Verð með VSK. Afhending samkvæmt gildandi skilmálum.
Kaupleið
Rendering loop-subscriptions
Rendering loop-subscriptions

Fljót afgreiðsla á virkum dögum. Pantanir fyrir hádegi fara yfirleitt af stað samdægurs.

Sjá afhendingarleiðir og áætlaðan kostnað
Velja fleiri en einn

Veldu magn. Afsláttur reiknast í körfu samkvæmt þeim kjörum sem eiga við.

Verð fyrir afslátt. Afslættir leggjast ekki sjálfkrafa saman.

Sjá algengar spurningar um vöruna
Um vöruna

Þessi blautmatur er heilfóður (e. complete) og inniheldur því öll þau næringarefni sem fullorðnir kettir þurfa á að halda til að stuðla að langtíma heilbrigði 👌💯

Blautmaturinn er stútfullur af auðmeltanlegu og hreinu alvöru kjöti frá kjúkling🍗

Maturinn inniheldur einnig laxaolíu fyrir glansandi feld og heilbrigða húð, glucosamine og chondroitine fyrir heilbrigða liði og sætar kartöflur, bláber og hindber fyrir trefjar, andoxunarefni og vítamín 🍠🫐🌟

Sætar kartöflur eru ríkar af trefjum, sem hjálpa til við heilbrigða meltingu, og þær eru stútfullar af vítamínum sem styðja við almenna heilsu 

Bláber eru hlaðin andoxunarefnum sem styrkja ónæmiskerfið og styðja við liðheilsu 

Hindber innihalda mikið af trefjum og andoxunarefnum, stuðla að heilbrigðum þörmum og draga úr bólgum.

 


Eiginleikar

Formúlan í hnotskurn:

  • Ætluð fullorðnum og eldri köttum
  • Með alvöru kjúklingi
  • Laxaolía fyrir heilbrigða húð og glansandi feld
  • Glucosamine og chondroitine fyrir heilbrigða liði
  • Sætar kartöflur, bláber og hindber
  • Tárín, vítamín og steinefni
  • Engar maís-, soja- eða aðrar kornafurðir
  • Engin litar- eða gerviefni
  • Engin viðbætt efni
  • Engin óheilnæm eða óþarfa innihaldsefni
Meira um vöruna

Af hverju að velja blautmat sem er um leið heilfóður? 

1. Heildræn næring: Heilfóður býður upp á fullkomið jafnvægi próteina, fitu og kolvetna og tryggir að kötturinn fái öll næringarefnin sem hann þarfnast í hverjum bita. Ekki er þörf á viðbótar næringu.

2. Vökvaupptaka: Kettir eiga það til að drekka ekki nóg af vatni. Blautmatur hjálpar til við að stuðla að vökvaupptöku og þar með heilbrigðri nýrna- og þvagfærastarfsemi.

3. Bragð: Blautmaturinn frá Taste of the Wild er ekki bara stútfullur af heilbrigðri næringu, kettir elska líka villta kjötbragðið af honum.

4. Meltingarheilbrigði: Blautmaturinn er auðmeltanlegur og mildur í maga kattarins sem dregur úr hættu á meltingarvandamálum og stuðlar að heilbrigðri þarmaflóru.

5. Heilbrigð húð og feldur: Blautmaturinn inniheldur nauðsynlegar fitusýrur sem stuðla að glansandi feld og heilbrigðri húð

6. Þyngdarstjórnun: Blautmatur getur hjálpað til við þyngdarstjórnun þar sem að hver biti inniheldur almennt meiri vökva og færri kaloríur. Kötturinn upplifir sig fyrr saddan þrátt fyrir að hafa innbyrt færri kaloríur, sem getur hjálpar til við að viðhalda heilbrigðri þyngd.

Veldu hreinan blautmat með alvöru kjöti og öllum þeim næringarefnum sem kötturinn þarf á að halda fyrir langtíma heilbrigði. Kötturinn þinn á það skilið! 🐱🍽️

Taste of the Wild er vinsælast framleiðandi af hveiti - og kornlausu gæludýrafóðri í heiminum🥇

Skoða allar upplýsingar

Taste of the Wild

Af hverju þetta fóður?

Helstu styrkleikarnir, skýrt og einfalt.

Ætluð fullorðnum og eldri köttum

Sérhönnuð uppskrift sem tekur tillit til þarfa fullorðinna og eldri katta.

Með alvöru kjúklingi

Kjúklingur og kjúklingalifur eru aðalhráefnin og laxaolía gefur omega-3 fitusýrur.

Laxaolía fyrir heilbrigða húð og glansandi feld

Næringarrík laxaolía, full af omega-3 fitusýrum, sem styður við heilbrigða húð.

Vantar þig hjálp við valið?

Við hjálpum þér að finna fóður sem passar við þarfir dýrsins.

Spyrja okkur

Upplýsingar af umbúðum

Innihaldsefni og næring

Samsetning, næringargildi og viðbætt næringarefni á einum stað.

Samsetning Hráefnin í röð eftir magni

Kjúklingur 50%, kjúklingalifur 20%, kjúklingasoð 10%, steinefni, laxaolía, sólblómaolía, inúlín, þurrkaðar sætar kartöflur, þurrkuð bláber, þurrkuð hindber, glúkósamín HCl, kondroitín súlfat

Næringargildi Yfirlýst greining vörunnar

113 kcal/100g, Crude Prótein 10.5%, Crude Fat 8.5%, Crude Fibre 0.5%, Crude Ash 3.5%, Raki 77%

Viðbætt næringarefni Vítamín, steinefni og önnur næringarefni

Amino Acids DL-methionine 2,000 mg/kg Vitamins Vitamin A 11,500 IU/kg Vitamin D3 865 IU/kg Vitamin E 175 IU/kg Taurine 1,000 mg/kg Trace Elements Iron (as iron(II) chelate of amino acids hydrate) 10.35 mg/kg Copper (as copper(II) chelate of amino acids hydrate) 1.2 mg/kg Iron (as iron(II) sulphate monohydrate) 20.7 mg/kg Copper (as copper(II) sulphate pentahydrate) 2 mg/kg Iodine (as potassium iodide) 1.7325 mg/kg Manganese (as manganese chelate of amino acids hydrate) 2.1 mg/kg Manganese (as manganese (II) oxide) 7.7 mg/kg Manganese (as manganous sulphate monohydrate) 4.48 mg/kg Zinc (as zinc chelate of amino acids hydrate) 11.25 mg/kg Zinc (as zinc sulphate monohydrate) 26.625 mg/kg Selenium (as sodium selenite) 0.018 mg/kg Sensory additive: natural flavour

Hvernig er best að skipta yfir í nýtt fóður?

Almennt er mælt með að skipta hægt um hunda- eða kattafóður til að setja ekki maga og meltingakerfi dýranna í uppnám. Almennt er mælt með að gera það yfir 7-10 daga.

Hér er tillaga að 7 daga plani til að skipta yfir í nýtt hunda eða kattafóður:

  • Dagur 1 – 10% nýja fóðrið / 90% gamla fóðrið
  • Dagur 2 – 20% nýja fóðrið / 80% gamla fóðrið
  • Dagur 3 – 30% nýja fóðrið / 70% gamla fóðrið
  • Dagur 4 – 40% nýja fóðrið / 60% gamla fóðrið
  • Dagur 5 – 60% nýja fóðrið / 40% gamla fóðrið
  • Dagur 6 – 80% nýja fóðrið / 20% gamla fóðrið
  • Dagur 7 – 100% nýja fóðrið

Ef gæludýrið er með sögu af meltingavandamálum er mælt með að skipta enn hægar yfir í nýtt fóður.

Algengar spurningar

Hvað einkennir Taste of the Wild?

Bragðgott fóður með fjölbreyttum próteingjöfum, innblásið af náttúrunni. Veldu uppskrift eftir aldri, stærð og þörfum — og finndu uppáhaldið í næstu máltíð.

Hvernig vel ég heilfóður við hæfi?

Veldu heilfóður fyrir rétt lífsskeið. Á vörusíðunni finnur þú innihald, næringargildi og upplýsingar um fyrir hvaða aldur uppskriftin er ætluð.

Hvar er Taste of the Wild framleitt?

Taste of the Wild er framleitt í Bandaríkjunum af Diamond Pet Foods, fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í gæludýrafóðri.

Hvað einkennir kornlausu uppskriftirnar?

Í kornlausu uppskriftunum koma kolvetni meðal annars úr sætum kartöflum, kartöflum eða baunum í stað korns. Þú getur valið eftir þeim hráefnum og próteingjöfum sem henta dýrinu þínu.

Hvað með kornlaust fóður og DCM?

FDA hefur frá árinu 2018 rannsakað hvort tengsl séu milli tiltekins fóðurs, oft kornlauss, og hjartasjúkdómsins DCM hjá hundum. Þeim rannsóknum er ekki lokið og orsakasamband hefur ekki verið staðfest. DCM er að stórum hluta erfðatengdur sjúkdómur, og þegar kemur að fóðrinu skiptir mestu að það sé vel samsett, með gæða dýrapróteinum, nægum amínósýrum og tauríni.

Taste of the Wild byggir á alvöru kjöti sem fyrsta innihaldsefni og notar meðal annars sætar kartöflur í stað hveitis og maís. Allar uppskriftirnar eru heilfóður sem uppfyllir næringarviðmið AAFCO og framleiðandinn bætir tauríni í þær allar. Lestu yfirlitið okkar um DCM og kornlaust fóður.

Hvað skiptir mestu við fóðurvalið?

Góð máltíð sameinar bragð og næringu sem hentar dýrinu. Byrjaðu á aldri og þörfum, veldu próteingjafa og finndu uppskrift sem passar í daglegt líf ykkar.

Hvers vegna leggjum við áherslu á kjöt fyrst?

Kjöt, fiskur og fuglakjöt gefa máltíðinni bragð og mikilvæg prótein. Við leggjum áherslu á vandaða próteingjafa og næringarríka heildarsamsetningu — því það skiptir máli hvað fer í skálina.

Hvaða próteingjafar eru í boði?

Í úrvalinu finnur þú meðal annars uppskriftir með vísundakjöti, lambakjöti, önd eða fiski. Hver uppskrift hefur sitt bragð og sína samsetningu; fulla innihaldið finnur þú á vörusíðunni.

Hvaða uppskrift hentar aldri dýrsins?

Veldu eftir lífsskeiði. Sumar uppskriftir eru ætlaðar ungum dýrum, aðrar fullorðnum og sumar fleiri lífsskeiðum. Aldursmerking hverrar vöru hjálpar þér að velja.

Hvar byrja ég?

Veldu hundafóður eða kattafóður og finndu uppskrift sem hentar aldri og þörfum. Viltu aðstoð? Við hjálpum þér gjarnan að velja næstu máltíð.