Pacific Stream hvolpa- og fullorðinsfóður - Lax 170g
Fara beint í vöruupplýsingar
1 af 7

Taste of the Wild

Pacific Stream hvolpa- og fullorðinsfóður - Lax 170g

Pacific Stream hvolpa- og fullorðinsfóður - Lax 170g

595 kr.

350 kr. / 100 g

Verð með VSK. Afhending samkvæmt gildandi skilmálum.
Kaupleið
Rendering loop-subscriptions
Rendering loop-subscriptions

Fljót afgreiðsla á virkum dögum. Pantanir fyrir hádegi fara yfirleitt af stað samdægurs.

Sjá afhendingarleiðir og áætlaðan kostnað
Velja fleiri en einn

Veldu magn. Afsláttur reiknast í körfu samkvæmt þeim kjörum sem eiga við.

Verð fyrir afslátt. Afslættir leggjast ekki sjálfkrafa saman.

Sjá algengar spurningar um vöruna
Um vöruna

Pacific Stream hvolpafóður er með reyktum lax og höfðar bragðið til villtrar náttúru allra hunda. Lax er lágur í mettuðum fitusýrum, hár í próteinum, omega-3 fitusýrum, B12-vítamíni, kalíum, og D-vítamíni. Omega-3 fitusýrur eru þekktar fyrir að draga úr bólgumyndun og stuðla að heilbrigðri húð og feld.

Lax er sjaldgæfari próteingjafi sem fer vel í maga og getur hentað hundum með viðkvæmni fyrir algengum próteingjöfum. Lax býr yfir fjölmörgum heilsufarslegum ávinning sem stuðlar að vellíðan og almennri heilsu og er því dýrmæt viðbót við mataræði hunda á öllum aldri.

Formúlan inniheldur DHA Omega-3 fitusýrur og öll næringarefni sem hvolpar þurfa nauðsynlega á að halda til að vaxa og dafna með heilbriðgum hætti. Minni fóðuragnir auðvelda hvolpum að njóta næringarefnanna.

Næringarleg samsetning og DHA innihald gerir þetta fóður einnig frábært fyrir hvolpafullar tíkur, þær sem nýlega hafa gotið og aðra fullorðna hunda.

Þessi uppskrift er eggjalaus.

Taste of the Wild er vinsælasta gæludýrafóður heims – án hveitis og korns.

 

Eiginleikar

Þessi formúla inniheldur:

  • Fyrsta innihaldsefni úr hágæða lax
  • Eggjalaus uppskrift
  • Ekkert hveiti og engin hrísgrjón
  • Engar maís-, soja- eða aðrar kornafurðir
  • Engin litar- eða gerviefni
  • Engin viðbætt efni
  • Engin óheilnæm eða óþarfa innihaldsefni
Skoða allar upplýsingar

Taste of the Wild

Af hverju þetta fóður?

Helstu styrkleikarnir, skýrt og einfalt.

Fyrsta innihaldsefni úr hágæða lax

Lax er fyrsta innihaldsefnið og gefur mjúkt, auðmeltanlegt prótein.

Eggjalaus uppskrift

Uppskriftin er án eggja.

Ekkert hveiti og engin hrísgrjón

Þessi vara er laus við hveiti og hrísgrjón og hentar því vel hundum með viðkvæma meltingu eða fæðuóþol.

Vantar þig hjálp við valið?

Við hjálpum þér að finna fóður sem passar við þarfir dýrsins.

Finna rétta fóðrið

Upplýsingar af umbúðum

Innihaldsefni og næring

Samsetning, næringargildi og viðbætt næringarefni á einum stað.

Samsetning Hráefnin í röð eftir magni

Lax, sjávarfiskimjöl, sætar kartöflur, kartöflur, baunir, baunaprótein, canola olía, tómatmauk, reyktur lax, laxamjöl, laxaolía (uppspretta DHA), steinefni, þurrkaðar síkóríurætur, Yucca schidigera safi, tómatar, bláber, hindber.

Næringargildi Yfirlýst greining vörunnar

Prótein 27.0%, Fat Content 15.0%, Crude Fibres 5.0%, Crude Ash 7.3%, Raki 10.0%, Omega-6 Fatty Acids 2.4%, Omega-3 Fatty Acids 0.3%, DHA (Docosahexaenoic Acid) 0.05%

Viðbætt næringarefni Vítamín, steinefni og önnur næringarefni

Vitamins Vitamin A 11,500 IU/kg Vitamin D3 865 IU/kg Vitamin E 175 IU/kg Taurine 1,000 mg/kg Trace Elements Iron (as iron(II) chelate of amino acids hydrate) 10.35 mg/kg Copper (as copper(II) chelate of amino acids hydrate) 1.2 mg/kg Iron (as iron(II) sulphate monohydrate) 20.7 mg/kg Copper (as copper(II) sulphate pentahydrate) 2 mg/kg Iodine (as potassium iodide) 1.7325 mg/kg Manganese (as manganese chelate of amino acids hydrate) 2.1 mg/kg Manganese (as manganese (II) oxide) 7.7 mg/kg Manganese (as manganous sulphate monohydrate) 4.48 mg/kg Zinc (as zinc chelate of amino acids hydrate) 11.25 mg/kg Zinc (as zinc sulphate monohydrate) 26.625 mg/kg Selenium (as sodium selenite) 0.018 mg/kg Sensory additive: natural flavour

Hvernig er best að skipta yfir í nýtt fóður?

Almennt er mælt með að skipta hægt um hunda- eða kattafóður til að setja ekki maga og meltingakerfi dýranna í uppnám. Almennt er mælt með að gera það yfir 7-10 daga.

Hér er tillaga að 7 daga plani til að skipta yfir í nýtt hunda eða kattafóður:

  • Dagur 1 – 10% nýja fóðrið / 90% gamla fóðrið
  • Dagur 2 – 20% nýja fóðrið / 80% gamla fóðrið
  • Dagur 3 – 30% nýja fóðrið / 70% gamla fóðrið
  • Dagur 4 – 40% nýja fóðrið / 60% gamla fóðrið
  • Dagur 5 – 60% nýja fóðrið / 40% gamla fóðrið
  • Dagur 6 – 80% nýja fóðrið / 20% gamla fóðrið
  • Dagur 7 – 100% nýja fóðrið

Ef gæludýrið er með sögu af meltingavandamálum er mælt með að skipta enn hægar yfir í nýtt fóður.

Algengar spurningar

Hvað einkennir Taste of the Wild?

Bragðgott fóður með fjölbreyttum próteingjöfum, innblásið af náttúrunni. Veldu uppskrift eftir aldri, stærð og þörfum — og finndu uppáhaldið í næstu máltíð.

Hvernig vel ég heilfóður við hæfi?

Veldu heilfóður fyrir rétt lífsskeið. Á vörusíðunni finnur þú innihald, næringargildi og upplýsingar um fyrir hvaða aldur uppskriftin er ætluð.

Hvar er Taste of the Wild framleitt?

Taste of the Wild er framleitt í Bandaríkjunum af Diamond Pet Foods, fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í gæludýrafóðri.

Hvað einkennir kornlausu uppskriftirnar?

Í kornlausu uppskriftunum koma kolvetni meðal annars úr sætum kartöflum, kartöflum eða baunum í stað korns. Þú getur valið eftir þeim hráefnum og próteingjöfum sem henta dýrinu þínu.

Hvað með kornlaust fóður og DCM?

FDA hefur frá árinu 2018 rannsakað hvort tengsl séu milli tiltekins fóðurs, oft kornlauss, og hjartasjúkdómsins DCM hjá hundum. Þeim rannsóknum er ekki lokið og orsakasamband hefur ekki verið staðfest. DCM er að stórum hluta erfðatengdur sjúkdómur, og þegar kemur að fóðrinu skiptir mestu að það sé vel samsett, með gæða dýrapróteinum, nægum amínósýrum og tauríni.

Taste of the Wild byggir á alvöru kjöti sem fyrsta innihaldsefni og notar meðal annars sætar kartöflur í stað hveitis og maís. Allar uppskriftirnar eru heilfóður sem uppfyllir næringarviðmið AAFCO og framleiðandinn bætir tauríni í þær allar. Lestu yfirlitið okkar um DCM og kornlaust fóður.

Hvað skiptir mestu við fóðurvalið?

Góð máltíð sameinar bragð og næringu sem hentar dýrinu. Byrjaðu á aldri og þörfum, veldu próteingjafa og finndu uppskrift sem passar í daglegt líf ykkar.

Hvers vegna leggjum við áherslu á kjöt fyrst?

Kjöt, fiskur og fuglakjöt gefa máltíðinni bragð og mikilvæg prótein. Við leggjum áherslu á vandaða próteingjafa og næringarríka heildarsamsetningu — því það skiptir máli hvað fer í skálina.

Hvaða próteingjafar eru í boði?

Í úrvalinu finnur þú meðal annars uppskriftir með vísundakjöti, lambakjöti, önd eða fiski. Hver uppskrift hefur sitt bragð og sína samsetningu; fulla innihaldið finnur þú á vörusíðunni.

Hvaða uppskrift hentar aldri dýrsins?

Veldu eftir lífsskeiði. Sumar uppskriftir eru ætlaðar ungum dýrum, aðrar fullorðnum og sumar fleiri lífsskeiðum. Aldursmerking hverrar vöru hjálpar þér að velja.

Hvar byrja ég?

Veldu hundafóður eða kattafóður og finndu uppskrift sem hentar aldri og þörfum. Viltu aðstoð? Við hjálpum þér gjarnan að velja næstu máltíð.