Skip to product information
1 of 4

Taste of the Wild

Southwest Canyon m/nauti - Blautmatur 390 gr.

Southwest Canyon m/nauti - Blautmatur 390 gr.

Regular price 895 kr.
Regular price Sale price 895 kr.
Afsláttur Vara uppseld
Rendering loop-subscriptions

Out of stock

Rendering loop-subscriptions

Hversu mikið af blautmat á að gefa?

Magn fóðurs sem hundurinn þinn þarfnast fer eftir aldri,
virkni og tegund. Blautmatinn skal gefa við stofuhita og kæla skal ónotaðan skammt.

0-5 kg – 0,5 til 1 dós á dag

5-12 kg – 1 til 2 dósir á dag

12-25 kg – 2 til 3 dósir á dag

25-35 kg – 3 til 4 dósir á dag

>35 kg – 5 dósir á dag

Fyrir hvolpa skal fóðra allt að tvisvar sinnum ráðlagt magn
miðað við líkamsþyngd. Eftir því sem hvolpurinn eldist og nær árs aldri skal
minnka magnið smám saman svo að skammturinn sé nær ráðlögðum dagskammti
fullorðins hunds.

Gott er að styðjast við ráðlagðan dagskammt sem viðmið. Við
mælum með því að þú hafir hundinn þinn í ákjósanlegu líkamsástandi og leyfir
honum ekki að verða of þungur. Fóðurmagnið sem hundurinn þinn þarfnast getur
verið mismunandi eftir aldri, virkni og öðru fóðri / nammi sem gefið er.

Æskilegt er að vinna með dýralækninum þínum til að ákvarða ákjósanlega
þyngd fyrir hundinn þinn og gera nauðsynlegar breytingar á fóðrun eins og þurfa
þykir til að viðhalda ákjósanlegri þyngd.

Fóður í áskrift - Bestu kjörin og frí afhending!

Af hverju að vera í áskrift?

  • Bestu kjörin og besta þjónustan!
  • 10% afsláttur af öllu
  • 25% afsláttur af blautmat í kassavís
  • Frí afhending um allt land
  • Ekkert bras við að versla fóður
  • Engar áhyggjur af því að fóðrið klárist
  • Alltaf hægt að gera breytingar á áskrift
  • Hægt að hætta hvenær sem
  • Engin skuldbinding

Smelltu hér til að skrá þig!

Heilfóður (e. complete and balanced)

Allur blautmatur frá Taste of the Wild er „Complete and Balanced“ sem þýðir að þú gætir fóðrað hundinn einungis á blautmatnum og á sama tíma gulltryggt að hann fái öll þau næringarefni sem hann lífsnauðsynlega þarf á að halda til að viðhalda næringarlegu jafnvægi til lengri tíma.

Blautmaturinn frá Taste of the Wild inniheldur kjöt, grænmeti og ávexti í vísindalega rannsökuðum hlutföllum og færir hundinum þannig prótein, fitu, kolvetni, andoxunarefni, vítamín trefjar, steinefni og allt sem hann þarf. Þess vegna er allur blautmatur frá Taste of the Wild svokallað heilfóður.

Alvöru nautakjöt, grænmeti, baunir og ávextir!

Soutwest Canyon er með alvöru nautakjöti og ómótstæðilegu bragði. Maturinn inniheldur einnig baunir, grænmeti og ávexti og veitir andoxunarefni, vítamín, trefjar og steinefni til að stuðla að góðri heilsu, heilbrigðum feld og næringarlegu jafnvægi.

Frábær lystaukandi viðbót við þurrmatinn

Taste of the Wild blautmatur er frábær viðbót við þurrmatinn. Ef þú bleytir þurrmatinn með blautmatnum munu jafnvel mestu gikkirnir borða þurrmatinn með bestu lyst.

Innihaldsefni

Nautakjöt (24%), kjúklingur (18%), kartöflusterkja, steinefni, þurrkaðar baunir, þurrkaðar kartöflur, sólblómaolía, þurrkaðir tómatar, hörfræolía, inúlín, þurrkaðar sætar kartöflur, þurrkuð bláber, þurrkuð hindber.

Næringargildi

79 Kcal/100g.
Crude protein 7.5%,
Crude fat 3.5%,
Crude fiber 0.5%,
Crude ash 2.5%,
Moisture 80%.

Vítamín og amínósýrur

Vitamin A 3000IU, Vitamin D3 350IU, Vitamin E 40mg, Zinc (Zinc sulfate, Monohydrate) 25mg, Iron (Iron sulfate, Monohydrate) 20mg, Manganese (Manganese sulfate, Monohydrate) 3.75mg.

View full details