Mudventure Endurskinsjakki
Mudventure Endurskinsjakki
Hvernig finn ég réttu stærðina?
Hvernig finn ég réttu stærðina?
Leyfðu Hurtta að ráðleggja þér rétta
stærð miðað við þína tegund
Hurtta hannar allar sínar vörur með það
markmið að hundinum líði vel og sé verndaður í hvaða veðri sem er og á það við
um allar stærðir og tegundir hunda. Stærðarkerfi Hurtta byggir á mæligögnum meira en 4,000 hunda í hundruðum tegunda. Á vörusíðu Hurtta getur þú flétt upp þinni tegund og séð hvaða stærð Hurtta ráðleggur þér að velja fyrir þessa tilteknu vöru. Þú smellir á hlekkinn hér að neðan á á fellivalmynd á síðunni þar sem stendur "Breed Select breed"
Smelltu hér til að sjá hvaða stærð Hurtta leggur til að þú ættir að taka í þessari vöru!
Taktu málin og þú getur verið
viss um að þú sért að velja rétta stærð
- Smelltu á myndina með stærðartöflunni
í myndabankanum. - Taktu mælingar hundsins skv. mynd
þegar hundurinn stendur. - Berðu saman mælingarnar við upplýsingarnar
í stærðartöflunni. - Baklengdarmælingin ákvarðar stærð jakka
og heilgalla. - Fyrir beisli er mikilvægasta mælingin
ummál brjóstsins. - Ef mælingar hundsins falla á milli stærða
er mælt með að taka minni stærðina ef varan er heilgalli og stærri stærð ef varan er jakki og hægt að stilla baklengd
Hvernig á að mæla? - Myndband
Hvernig á að mæla? - Myndband
Stærðartafla
Stærðartafla
Virkni og tæknilegir eiginleikar
Virkni og tæknilegir eiginleikar
Mudventure endurskinsjakkinn er frábær í að halda óhreinindum og drullu frá hundinum og er með mesta fáanlega endurskini í Hurtta línunni svo að hundurinn sé vel sýnilegur. Jakkinn er léttur og þægilegur og hrindir frá sér regni, vind og drullu.
Jakkinn er ekki fóðraður heldur lagskiptur með mjúkri, sléttri og vatnsheldri himnu. Hann er alveg vatnsheldur niður í minnstu smáatriði og allir saumar sérstaklega hannaðir og þéttaðir með það í huga. Hægt er að smella opinu fyrir taum lokuðu svo að vatn komist ekki inn og einnig er hægt að herða vatnsheldan kraga á bak við eyrun svo að vatn renni ekki niður hálsinn. Allir saumar eru þéttaðir og límdir og því að fullu vatnsheldir. Flíkin gerir alla hunda klára í þetta klassíska íslenska rigningaveður og heldur þeim þurrum og lausa við drullu.
Þökk sé lykkjunum á afturlöppum helst jakkinn á sínum stað og getur hundurinn hlaupið af vild án þess að jakkinn hamli hreyfigetu eða færist úr stað. Jakkinn er stillanlegur á baki og með stillanlegt teygjubelti við mitti svo að hann sitji þægilega á hundinum.
Allur jakkinn er úr endurskinsefni til veita hámarks öryggi í myrkrinu.
Helstu eiginleikar:
- Frábær vörn við veðri og vindum
- Hentar öllum árstíðum þar sem að hundinum verður ekki of heitt
- Algerlega vatnsheld hönnun
- Léttur, stillanlegur og þægilegur
- Auðvelt að pakka saman og tekur lítið pláss á ferðalagi
- Lykkjur á afturlöppum og teygjubelti svo að flíkin tolli og sitji þægilega
- Allur úr endurskinsefni fyrir hámarks sýnileika og öryggi í myrkri