Mudventure Eco heilgallinn er frábær í að halda óhreinindum og drullu frá hundinum. Gallinn er léttur og þægilegur og hrindir frá sér regni, vind og drullu.
ECO Mudventure heilgallinn er gerður úr, léttu slitsterku og veðurheldu efni og eru allir saumar þéttaðir og límdir svo að hundurinn haldist þurr. Veitir gott jafnvægi á milli veðurverndar, hlýju og þæginda fyrir allar árstíðir. Gallinn er umhverfisvænn og gerður úr 100% endurunnu efni.
Snjall hálfrennilás gerir það auðvelt að klæða hundinn í og úr gallanum. Býður uppá ótrúlegan stillanleika. Handhæg teygjanleg bönd gera þér kleift að fínstilla baklengdina, lengd á skálmum, mittið, bringuna og hálsinn til að gallinn passi rétt og sitji vel á hundinum. Hægt er að smella opinu fyrir taum lokuðu svo að vatn komist ekki inn og einnig er hægt að herða vatnsheldan kraga á bak við eyrun svo að vatn renni ekki niður hálsinn. Mikið endurskin á báðum hliðum fyrir aukið öryggi.
Eitt er allavega víst – hundurinn helst þurr og þægilegur í hvaða veðri sem er ef hann klæðist ECO Mudventure heilgallanum.
*S-stærðir eru sérhannaðar fyrir smærri og dvergvaxnar tegundir með granna líkamsbyggingu og stuttar grannar lappir.