Diamond Naturals
Diamond Naturals Adult Large Breed hundafóður - Lamb 15kg
Diamond Naturals Adult Large Breed hundafóður - Lamb 15kg
Til á lager
Couldn't load pickup availability
Um vöruna
Lamb og ekkert hveiti
Þetta fóður er góður valkostur fyrir þá sem vilja gefa fóður með lambi og engum hveiti-, korn- eða soja afurðum.
Fyrir stóra fullorðna hunda 22 kg eða þyngri
Formúlan er sérstaklega hönnuð fyrir stóra fullorðna hunda 22 kg eða þyngri.
Heilbrigð næring og jöfn orka
Diamond Naturals Adult formúlan með lambi er heilfóður (e. complete) og tryggir þannig alla þá næringu sem hundar þurfa lífsnauðsynlega á að halda og meira til. Fóðrið stuðlar að heilbrigðri vöðvauppbyggingu og almennri heilsu og er ríkt af lambi og brúnum heilkorna hýðisgrísgrjónum.
Af hverju brún heilkorna hýðishrísgrjón?
Brún hrísgrjón eru heilkorn á meðan hvít hrísgrjón eru unnin/hreinsuð korn. Þessi munur á vinnslu hráefnanna hefur talsverð áhrif á næringarleg gæði þeirra og má þar m.a. nefna eftirfarandi atriði:
-
Trefjar
- Brún hrísgrjón innihalda meira af trefjum, veita meiri fyllingu og hjálpa til við meltingu.
-
Vítamín og steinefni
- Brún hrísgrjón innihalda meira af B-vítamínum, járni, magnesíum og sinki vegna ósnortinna klíð- og kímlaganna.
-
Andoxunarefni
- Brún hrísgrjón eru betri uppspretta andoxunarefna, sem geta hjálpað til við að vernda frumur gegn skemmdum.
-
Fýtínsýra (e. Phytic Acid)
- Hvít hrísgrjón hafa hærra fýtínsýruinnihald, sem getur dregið úr frásogi ákveðinna steinefna eins og járns og sinks.
Stuðlar að fallegum feld og heilbrigðum liðamótum
Formúlan er sérstaklega hönnuð fyrir fullorðna hunda eldri en 12 mánaða. Gott jafnvægi omega-3 og omega-6 fitusýra tryggir heilbrigða húð og glansandi feld.
Fóðrið inniheldur einnig viðbætt magn glúkósamíns og kondritíns til að styðja við heilbrigða liði. Fóðrið hentar því einnig eldri hundum vel.
Gæti hentað ofnæmispésum, hundum með óþol eða viðkvæman maga
Eina dýrapróteinið í þessari formúlu er frá lambi og formúlan inniheldur ekkert hveiti og engin egg. Gæti þessi formúla því reynst hundum með fæðuóþol, viðkvæman maga eða ofnæmi vel.
Inniheldur ofuræði (e. Superfoods)
Fóðrið inniheldur ofurfæði á borð við hörfræ, grænkál, chiafræ, grasker, bláber, appelsínur, þurrkaðan þara, kókoshnetur, spínat, gulrætur, papaya o.fl.
Ofurfæði er einstakt fæði sem hefur sérstaklega hátt næringargildi per einingu
Fóðrið í hnotskurn:
- Allt dýraprótein frá lambi
- Gæti reynst góður kostur við óþoli eða ofnæmi
- Inniheldur ofurfæði (e. superfoods)
- Glucosamine og chondroitin fyrir heilbrigða liði
- Ekkert hveiti
- Engin litar- eða gerviefni
- Engin viðbætt efni
- Engin óheilnæm eða óþarfa innihaldsefni





Afslættir þegar keyptir eru tveir eða fleiri pokar:
*Frí afhending um allt land með öllum tilboðum - Afsláttur virkjast sjálfkrafa í körfu*

Kynntu þér helstu staðreyndir um fóðrið
Prótein hlutfall: 22%
Alvöru dýraprótein: Lamb
Aðal kolvetnagjafi: Brún heilkorna hýðishrísgrjón
Lífsskeið: Fullorðinn
Sérstaklega ofnæmisvænt? Já
Verð per kg: 980 kr. m/vsk
10% afsláttur og frí afhending!
Hvernig er best að skipta yfir í nýtt fóður?
Almennt er mælt með að skipta hægt um hunda- eða kattafóður til að setja ekki maga og meltingakerfi dýranna í uppnám. Almennt er mælt með að gera það yfir 7-10 daga.
Hér er tillaga að 7 daga plani til að skipta yfir í nýtt hunda eða kattafóður:
- Dagur 1 – 10% nýja fóðrið / 90% gamla fóðrið
- Dagur 2 – 20% nýja fóðrið / 80% gamla fóðrið
- Dagur 3 – 30% nýja fóðrið / 70% gamla fóðrið
- Dagur 4 – 40% nýja fóðrið / 60% gamla fóðrið
- Dagur 5 – 60% nýja fóðrið / 40% gamla fóðrið
- Dagur 6 – 80% nýja fóðrið / 20% gamla fóðrið
- Dagur 7 – 100% nýja fóðrið
Ef gæludýrið er með sögu af meltingavandamálum er mælt með að skipta enn hægar yfir í nýtt fóður.


Af hverju að vera í áskrift?
- Bestu kjörin og besta þjónustan!
- 10% afsláttur af öllu
- 25% afsláttur af blautmat í kassavís
- Frí afhending um allt land
- Ekkert bras við að versla fóður
- Engar áhyggjur af því að fóðrið klárist
- Alltaf hægt að gera breytingar á áskrift
- Hægt að hætta hvenær sem
- Engin skuldbinding
Innihaldsefni
Lambakjötsmjöl, heilkorna hýðishrísgrjón, bygg, haframjöl, dúrra, þurrkað ger, hrísgrjónaklíð, kjúklingafita (varin niður með blönduðum tókóferólum), kartöfluprótein, þurrkað rófuhrat með náttúrulegu bragðefni, hörfræ, natríumklóríð, kalíumklóríð, glúkósamín, þurrkaðar síkóríurætur, grænkál, chiafræ, grasker, bláber, appelsínur, kínóa, þurrkaður þari, kókos, spínat, gulrætur, papaya, Yucca schidigera þykkni, kondritín súlfat.
Protein 22.0%, Fat content 12.0%, Crude fibre 4.0%, Crude ash 7.5%, Calcium 1.3%, Phosphorus 1.0%, Potassium 0.7%, Sodium 0.3%, Moisture 10.0%, Glucosamine hydrochloride 750 mg/kg, Chondroitin sulphate 250 mg/kg, Omega-6 fatty acids 2.0%, Omega-3 fatty acids 0.3%
Vitamin A 10,000 IU/kg, Vitamin B1 25 mg/kg, Vitamin B2 15 mg/kg, Vitamin B6 5 mg/kg, Vitamin B12 0.07 mg/kg, Vitamin C 50 mg/kg, Vitamin D3 1,000 IU/kg, Vitamin E 150 IU/kg, Biotin 0.25 mg/kg, Calcium D-pantothenate 50 mg/kg, Choline chloride 2,000 mg/kg, Folic acid 1.5 mg/kg, L-carnitine 300 mg/kg, Niacin 50 mg/kg, Taurine 1,200 mg/kg
Amino acids: DL-methionine 3,000 mg/kg
Trace Elements: Copper (as copper(II) chelate of amino acids hydrate) 10 mg/kg, Copper (as copper(II) sulphate pentahydrate) 10 mg/kg, Iodine (as potassium iodide) 2.5 mg/kg, Iron (as iron(II) chelate of amino acids hydrate) 100 mg/kg, Iron (as iron(II) sulphate monohydrate) 100 mg/kg, Manganese (as manganous sulphate monohydrate) 10 mg/kg, Manganese (as manganese chelate of amino acids hydrate) 10 mg/kg, Selenium (as sodium selenite) 0.6 mg/kg Zinc (as