Diamond Naturals
Diamond Naturals Adult Large Breed hundafóður - Kjúklingur 170g
Diamond Naturals Adult Large Breed hundafóður - Kjúklingur 170g
Til á lager
Couldn't load pickup availability
Um vöruna
Alvöru kjúklingur og ekkert hveiti
Fyrsta innihaldsefni er alvöru lausagöngu kjúklingur. Þetta fóður er góður valkostur fyrir þá sem vilja gefa fóður með alvöru kjúkling en engum hveiti-, korn- eða soja afurðum.
Fyrir stóra fullorðna hunda
Formúlan er sérstaklega hönnuð fyrir stóra fullorðna hunda, þyngri en 22 kg og eldri en 12 mánaða.
Gæti hentað ofnæmispésum, hundum með óþol eða viðkvæman maga
Þetta fóður inniheldur ekki hveiti, maís, maísmjöl, korn, sojaafurðir eða egg og engar órekjanlegar dýrafurðir. Fóðrið gæti því reynst góður kostur fyrir hunda með ofnæmi, óþol eða viðkvæman maga.
Af hverju brún heilkorna hýðishrísgrjón?
Brún hrísgrjón eru heilkorn á meðan hvít hrísgrjón eru unnin/hreinsuð korn. Þessi munur á vinnslu hráefnanna hefur talsverð áhrif á næringarleg gæði þeirra og má þar m.a. nefna eftirfarandi atriði:
Trefjar
Brún hrísgrjón innihalda meira af trefjum, veita meiri fyllingu og hjálpa til við meltingu.
Vítamín og steinefni
Brún hrísgrjón innihalda meira af B-vítamínum, járni, magnesíum og sinki vegna ósnortinna klíð- og kímlaganna.
Andoxunarefni
Brún hrísgrjón eru betri uppspretta andoxunarefna, sem geta hjálpað til við að vernda frumur gegn skemmdum.
Fýtínsýra (e. Phytic Acid)
Hvít hrísgrjón hafa hærra fýtínsýruinnihald, sem getur dregið úr frásogi ákveðinna steinefna eins og járns og sinks.
Stuðlar að fallegum feld og heilbrigðum liðamótum
Gott jafnvægi omega-3 og omega-6 fitusýra tryggir heilbrigða húð og glansandi feld. Fóðrið inniheldur einnig viðbætt magn glúkósamíns og kondritíns til að styðja við heilbrigða liði. Fóðrið hentar því einnig eldri hundum vel.
Inniheldur ofurfæði (e. Superfoods)
Ofurfæði er einstakt fæði sem hefur sérstaklega hátt næringargildi per einingu. Þetta fóður inniheldur ofurfæði á borð við hörfræ, grænkál, chiafræ, grasker, bláber, appelsínur, þurrkaðan þara, kókoshnetur, spínat, gulrætur, papaya o.fl.
Eiginleikar
Samantekt:
- Fyrsta innihaldsefni er alvöru kjúklingur
- Allt dýraprótein frá kjúkling
- Gæti reynst góður kostur við óþoli eða ofnæmi
- Inniheldur ofurfæði (e. superfoods)
- Glucosamine og chondroitin fyrir heilbrigða liði
- Ekkert hveiti
- Engin hvít hrísgrjón
- Engar korn- eða soja afurðir
- Engin litar- eða gerviefni
- Engin óheilnæm eða óþarfa innihaldsefni






Kynntu þér helstu staðreyndir um fóðrið
Prótein hlutfall: 23%
Alvöru dýraprótein: Kjúklingur
Aðal kolvetnagjafi: Brún heilkorna hýðishrísgrjón
Lífsskeið: Fullorðinn
Sérstaklega ofnæmisvænt? Já
Verð per kg: 980 kr. m/vsk
10% afsláttur og frí afhending!
Hvernig er best að skipta yfir í nýtt fóður?
Almennt er mælt með að skipta hægt um hunda- eða kattafóður til að setja ekki maga og meltingakerfi dýranna í uppnám. Almennt er mælt með að gera það yfir 7-10 daga.
Hér er tillaga að 7 daga plani til að skipta yfir í nýtt hunda eða kattafóður:
- Dagur 1 – 10% nýja fóðrið / 90% gamla fóðrið
- Dagur 2 – 20% nýja fóðrið / 80% gamla fóðrið
- Dagur 3 – 30% nýja fóðrið / 70% gamla fóðrið
- Dagur 4 – 40% nýja fóðrið / 60% gamla fóðrið
- Dagur 5 – 60% nýja fóðrið / 40% gamla fóðrið
- Dagur 6 – 80% nýja fóðrið / 20% gamla fóðrið
- Dagur 7 – 100% nýja fóðrið
Ef gæludýrið er með sögu af meltingavandamálum er mælt með að skipta enn hægar yfir í nýtt fóður.


Af hverju að vera í áskrift?
- Bestu kjörin og besta þjónustan!
- 10% afsláttur af öllu
- 25% afsláttur af blautmat í kassavís
- Frí afhending um allt land
- Ekkert bras við að versla fóður
- Engar áhyggjur af því að fóðrið klárist
- Alltaf hægt að gera breytingar á áskrift
- Hægt að hætta hvenær sem
- Engin skuldbinding
Innihaldsefni
Kjúklingur (14%), kjúklingamjöl, brún heilkorna hýðishrísgrjón (14%), bygg, dúrra, haframjöl, hrísgrjónaklíð, þurrkað ger, kjúklingafita, þurrkað rófuhrat, náttúrulegt bragðefni, hörfræ, natríumklóríð, kalíumklóríð, glúkósamín, þurrkaðar síkóríurætur, grænkál, chiafræ, grasker, bláber, appelsínur, kínóa, þurrkaður þari, kókos, spínat, gulrætur, papaya, Yucca schidigera safi, kondritín súlfat.
Protein 23.0%, Fat content 13.0%, Crude fibre 3.0%, Crude ash 6.0%, Calcium 1.2%, Phosphorus 1.0%, Potassium 0.7%, Sodium 0.3%, Moisture 10.0%, Glucosamine hydrochloride 750 mg/kg, Chondroitin sulphate 250 mg/kg, Omega-6 fatty acids 2.5%, Omega-3 fatty acids 0.4%
Vítamín: Vitamin A 10,000 IU/kg, Vitamin B1 25 mg/kg, Vitamin B2 15 mg/kg, Vitamin B6 5 mg/kg, Vitamin B12 0.07 mg/kg, Vitamin C 50 mg/kg, Vitamin D3 1,000 IU/kg, Vitamin E 150 IU/kg, Biotin 0.25 mg/kg, Calcium D-pantothenate 50 mg/kg, Choline chloride 2,000 mg/kg, Folic acid 1.5 mg/kg, L-carnitine 300 mg/kg, Niacin 50 mg/kg, Taurine 1,200 mg/kg
Aminósýrur: DL-methionine 2,000 mg/kg
Steinefni: Copper (as copper(II) chelate of amino acids hydrate) 10 mg/kg, Copper (as copper(II) sulphate pentahydrate) 10 mg/kg, Iodine (as potassium iodide) 2.5 mg/kg, Iron (as iron(II) chelate of amino acids hydrate) 100 mg/kg, Iron (as iron(II) sulphate monohydrate) 100 mg/kg, Manganese (as manganous sulphate monohydrate) 10 mg/kg, Manganese (as manganese chelate of amino acids hydrate) 10 mg/kg, Selenium (as sodium selenite) 0.6 mg/kg, Zinc (as zinc chelate of amino acids hydrate) 100 mg/kg, Zinc (as zinc sulphate monohydrate) 100 mg/kg
Algengar spurningar
Hvers vegna er Diamond Naturals svona mikið verðmæti fyrir peninginn?
Þú færð alvöru hráefni, engin gerviefni og hágæða næringu – á verði sem stór vörumerki geta ekki keppt við. Þetta er fóður sem virkar, án þess að kosta meira en það þarf.
Inniheldur Diamond Naturals korn – og ef svo er, hvers konar?
Já – en aðeins næringarrík heilkorn eins og brúnt hrísgrjón og hafrar. Aldrei hveiti, maís eða soja. Þetta eru kolvetni sem styðja við meltingu og stöðuga orku – ekki ódýr fylliefni.
Hvernig styður Diamond Naturals við meltingarheilsu?
Með trefjaríku hráefni og probiotics sem hjálpa til við að viðhalda heilbrigðri meltingarflóru og betri upptöku næringarefna.
Hentar þetta fjölskyldum með fleiri en eitt dýr?
Algjörlega. Diamond Naturals kemur í stærri pokum með lægra kílóverði – án þess að fórna gæðum. Fullkomið fyrir fjölskyldur sem vilja gæði og hagkvæmni í einu.
Inniheldur þetta ofurfæði og náttúruleg andoxunarefni?
Já – hráefni eins og bláber, spínat og chiafræ veita vítamín, steinefni og andoxunarefni sem styðja við ónæmiskerfið og almenna heilsu.
Hvar er Diamond Naturals framleitt?
Í Bandaríkjunum, af fjölskyldureknum fyrirtæki sem rekur sínar eigin verksmiðjur og fylgir ströngu gæðaeftirliti. Gæði og rekjanleiki eru í forgangi.
Hvernig ber Diamond Naturals sig saman við dýrari merki?
Það notar oft betri hráefni, meiri gagnsæi og minna markaðsbragð – á mun sanngjarnara verði. Þú borgar fyrir innihaldið, ekki umbúðirnar.
Er til sérstök lína fyrir stórar tegundir?
Já. Diamond Naturals býður upp á Large Breed formúlur með réttum hlutföllum kalsíums, glúkósamíns og kaloríuþéttleika fyrir stærri líkamsbyggingu og liðheilsu.
Hvaða próteingjafar eru notaðir?
Kjúklingur frá frjálsum búum, lamb frá beitilandi og villtur lax – alltaf alvöru kjöt sem fyrsta innihaldsefni. Það skiptir máli fyrir bragð, upptöku og vöðvavöxt.
Af hverju ætti ég að skipta yfir í Diamond Naturals í dag?
Því þú færð meira fyrir minna: hágæða næringu, alvöru hráefni, engin gerviefni – og fóður sem dýrið þitt mun blómstra á. Þetta er skynsamlegt val.