Þessi blautmatur er heilfóður (e. complete) og inniheldur því öll þau næringarefni sem kettir þurfa á að halda til að stuðla að langtíma heilbrigði 👌💯
Lowland Creek blautmaturinn er stútfullur af auðmeltanlegu og hreinu alvöru próteini eins og silung og kjúkling 🐟🍗
Maturinn inniheldur einnig laxaolíu fyrir glansandi feld og heilbrigða húð og sætar kartöflur, bláber og hindber fyrir trefjar, andoxunarefni og vítamín 🍠🫐🌟
Sætar kartöflur eru ríkar af trefjum, sem hjálpa til við heilbrigða meltingu, og þær eru stútfullar af vítamínum sem styðja við almenna heilsu
Bláber eru hlaðin andoxunarefnum sem styrkja ónæmiskerfið og styðja við liðheilsu
Hindber innihalda mikið af trefjum og andoxunarefnum, stuðla að heilbrigðum þörmum og draga úr bólgum.
Formúlan í hnotskurn:
- Hentar bæði kettlingum og fullorðnum köttum
- Kalúnn og önd
- Laxaolía fyrir heilbrigða húð og glansandi feld
- Sætar kartöflur, bláber og hindber
- Tárín, vítamín og steinefni
- Öll næringarefni sem kettir þurfa
- Engar maís-, soja- eða aðrar kornafurðir
- Engin litar- eða gerviefni
- Engin viðbætt efni
- Engin óheilnæm eða óþarfa innihaldsefni
Af hverju að velja blautmat sem er um leið heilfóður?
1. Heildræn næring: Heilfóður býður upp á fullkomið jafnvægi próteina, fitu og kolvetna og tryggir að kötturinn þinn fái öll næringarefnin sem hann þarfnast í hverjum bita. Ekki er þörf á viðbótar næringu.
2. Vökvaupptaka: Kettir eiga það til að drekka ekki nóg af vatni. Blautmatur hjálpar til við að stuðla að vökvaupptöku og þar með heilbrigðri nýrna- og þvagfærastarfsemi.
3. Bragð: Blautmaturinn frá Taste of the Wild er ekki bara stútfullur af heilbrigðri næringu, kettir elska líka villta kjötbragðið af honum.
4. Meltingarheilbrigði: Blautmaturinn er auðmeltanlegur og mildur í maga kattarins sem dregur úr hættu á meltingarvandamálum og stuðlar að heilbrigðri þarmaflóru.
5. Heilbrigð húð og feldur: Blautmaturinn inniheldur nauðsynlegar fitusýrur sem stuðla að glansandi feld og heilbrigðri húð
6. Þyngdarstjórnun: Blautmatur getur hjálpað til við þyngdarstjórnun þar sem að hver biti inniheldur almennt meiri vökva og færri kaloríur. Kötturinn upplifir sig fyrr saddan þrátt fyrir að hafa innbyrt færri kaloríur, sem getur hjálpar til við að viðhalda heilbrigðri þyngd.
Veldu hreinan blautmat með alvöru kjöti og öllum þeim næringarefnum sem kötturinn þarf á að halda fyrir langtíma heilbrigði. Kötturinn þinn á það skilið! 🐱🍽️
Taste of the Wild er vinsælast framleiðandi af hveiti - og kornlausu gæludýrafóðri í heiminum🥇