Skip to product information
1 of 18

Hurtta

Warming Midlayer Peysa Eco - Hitaeinangrun

Warming Midlayer Peysa Eco - Hitaeinangrun

Regular price 10.995 kr.
Regular price Sale price 10.995 kr.
Afsláttur Væntanlegt
Rendering loop-subscriptions
Size
Color
Rendering loop-subscriptions

Hvernig finn ég réttu stærðina?

Leyfðu Hurtta að ráðleggja þér rétta
stærð miðað við þína tegund

Hurtta hannar allar sínar vörur með það
markmið að hundinum líði vel og sé verndaður í hvaða veðri sem er og á það við
um allar stærðir og tegundir hunda. Stærðarkerfi Hurtta byggir á mæligögnum meira en 4,000 hunda í hundruðum tegunda. Á vörusíðu Hurtta getur þú flétt upp þinni tegund og séð hvaða stærð Hurtta ráðleggur þér að velja fyrir þessa tilteknu vöru. Þú smellir á hlekkinn hér að neðan á á fellivalmynd á síðunni þar sem stendur "Breed Select breed"

Smelltu hér til að sjá hvaða stærð Hurtta leggur til að þú ættir að taka í þessari vöru!

Taktu málin og þú getur verið
viss um að þú sért að velja rétta stærð

  1. Smelltu á myndina með stærðartöflunni
    í myndabankanum.
  2. Taktu mælingar hundsins skv. mynd
    þegar hundurinn stendur.
  3. Berðu saman mælingarnar við upplýsingarnar
    í stærðartöflunni. 
  4. Baklengdarmælingin ákvarðar stærð jakka
    og heilgalla.
  5. Fyrir beisli er mikilvægasta mælingin
    ummál brjóstsins.
  6. Ef mælingar hundsins falla á milli stærða
    er mælt með að taka minni stærðina ef varan er heilgalli og stærri stærð ef varan er jakki og hægt að stilla baklengd

Smelltu hér til að fá ítarlegar upplýsingar um allar vörur Hurtta og hvernig þú finnur réttu stærðina.

Hvernig á að mæla? - Myndband

Stærðartafla

Virkni og tæknilegir eiginleikar

Midlayer ECO Peysan er bjargvættur í köldu veðri. Peysan veitir mikla hlýju og er búin einstakri hönnun og sérstöku efni að innan sem einangrar og viðheldur hlýjunni sem líkamshiti hundsins veitir, varpar henni aftur að líkama hundsins og heldur þannig hundinum heitum í köldu veðri.

Peysan er opin á framfótum sem gefur hundinum svigrúm til að klæðast flíkinni án takmarkana á hreyfigetu.

Frábær flík fyrir:

·       Hunda með þunnan feld og hunda sem verða gjarnan kalt

·       Hunda sem eru óvanir því að klæðast flíkum þar sem að peysan fellur afar vel og notalega að líkama hundsins

·       Hunda í miklu líkamlegu átaki til að halda vöðvum heitum og betur undirbúnum fyrir líkamleg átök

·       Eldri hunda til að draga úr kuldatengdum verkjum í liðum og til að halda vöðvum heitum og auðvelda þannig hreyfingu

 Helstu eiginleikar:

  • Frábær vörn við kulda og virkjar blóðflæði
  • Endurkastar líkamshita hundsins aftur að líkama hans
  • Létt, mjúk, stillanleg og þægileg
  • Saumar með endurskini og Hurtta endurskinsmerki fylgir
  • Engar smellur, ekkert belti, engir rennilásar og auðvelt að klæða í og úr
  • Sniðug sem hitalag undir jakka eða heilgalla
  • Hægt að stilla hálsmál, kraga, mitti og baklengd
  • Mjúkt, endingargott og endurunnið efni
View full details