Rocky Mountain blautmatur - Kjúklingur og lax 85g
Fara beint í vöruupplýsingar
1 af 5

Taste of the Wild

Almennt verð 465 kr.
Almennt verð Tilboðsverð 465 kr.
Afsláttur Vara uppseld

547 kr. / 100 g

Verð með VSK. Afhending samkvæmt gildandi skilmálum.
Kaupleið
Rendering loop-subscriptions
Rendering loop-subscriptions

Fljót afgreiðsla á virkum dögum. Pantanir fyrir hádegi fara yfirleitt af stað samdægurs.

Sjá afhendingarleiðir og áætlaðan kostnað
Sjá algengar spurningar um vöruna
Um vöruna

Þessi blautmatur er heilfóður (e. complete) og inniheldur því öll þau næringarefni sem kettir þurfa á að halda til að stuðla að langtíma heilbrigði 👌💯

Rocky Mountain blautmaturinn er stútfullur af auðmeltanlegu og hreinu alvöru kjöti eins og kjúkling, kjúklingalifur og lax 🍗🐟

Maturinn inniheldur einnig laxaolíu fyrir glansandi feld og heilbrigða húð og sætar kartöflur, bláber og hindber fyrir trefjar, andoxunarefni og vítamín 🍠🫐🌟

Sætar kartöflur eru ríkar af trefjum, sem hjálpa til við heilbrigða meltingu, og þær eru stútfullar af vítamínum sem styðja við almenna heilsu 

Bláber eru hlaðin andoxunarefnum sem styrkja ónæmiskerfið og styðja við liðheilsu 

Hindber innihalda mikið af trefjum og andoxunarefnum, stuðla að heilbrigðum þörmum og draga úr bólgum.

 


Eiginleikar

Formúlan í hnotskurn:

  • Hentar bæði kettlingum og fullorðnum köttum
  • Færri hitaeinginar
  • Gæti hentað of þungum og geldum köttum
  • Kjúklingur og lax
  • Laxaolíu fyrir heilbrigða húð og glansandi feld
  • Sætar kartöflur, bláber og hindber
  • Tárín, vítamín og steinefni
  • Öll næringarefni sem kettir þurfa 
  • Engar maís-, soja- eða aðrar kornafurðir
  • Engin litar- eða gerviefni
  • Engin viðbætt efni
  • Engin óheilnæm eða óþarfa innihaldsefni
Meira um vöruna

Af hverju að velja blautmat sem er um leið heilfóður? 

1. Heildræn næring: Heilfóður býður upp á fullkomið jafnvægi próteina, fitu og kolvetna og tryggir að kötturinn þinn fái öll næringarefnin sem hann þarfnast í hverjum bita. Ekki er þörf á viðbótar næringu.

2. Vökvaupptaka: Kettir eiga það til að drekka ekki nóg af vatni. Blautmatur hjálpar til við að stuðla að vökvaupptöku og þar með heilbrigðri nýrna- og þvagfærastarfsemi.

3. Bragð: Blautmaturinn frá Taste of the Wild er ekki bara stútfullur af heilbrigðri næringu, kettir elska líka villta kjötbragðið af honum.

4. Meltingarheilbrigði: Blautmaturinn er auðmeltanlegur og mildur í maga kattarins sem dregur úr hættu á meltingarvandamálum og stuðlar að heilbrigðri þarmaflóru.

5. Heilbrigð húð og feldur: Blautmaturinn inniheldur nauðsynlegar fitusýrur sem stuðla að glansandi feld og heilbrigðri húð

6. Þyngdarstjórnun: Blautmatur getur hjálpað til við þyngdarstjórnun þar sem að hver biti inniheldur almennt meiri vökva og færri kaloríur. Kötturinn upplifir sig fyrr saddan þrátt fyrir að hafa innbyrt færri kaloríur, sem getur hjálpar til við að viðhalda heilbrigðri þyngd.

Veldu hreinan blautmat með alvöru kjöti og öllum þeim næringarefnum sem kötturinn þarf á að halda fyrir langtíma heilbrigði. Kötturinn þinn á það skilið! 🐱🍽️

Taste of the Wild er vinsælast framleiðandi af hveiti - og kornlausu gæludýrafóðri í heiminum🥇

Skoða allar upplýsingar

Taste of the Wild

Af hverju þetta fóður?

Helstu styrkleikarnir, skýrt og einfalt.

Hentar bæði kettlingum og fullorðnum köttum

Þessi vara er sérhönnuð til að henta köttum á öllum aldri.

Færri hitaeinginar

Þessi vara inniheldur færri hitaeiningar og er tilvalin fyrir ketti sem þurfa að viðhalda.

Gæti hentað of þungum og geldum köttum

Þessi vara er sérhönnuð með þarfir of þungra og gelda katta í huga.

Vantar þig hjálp við valið?

Við hjálpum þér að finna fóður sem passar við þarfir dýrsins.

Spyrja okkur

Upplýsingar af umbúðum

Innihaldsefni og næring

Samsetning, næringargildi og viðbætt næringarefni á einum stað.

Samsetning Hráefnin í röð eftir magni

Kjúklingur 30%, kjúklingalifur 9%, lax 5%, steinefni, alifuglaplasma, laxaolía, sólblómaolía, inúlín, þurrkaðar sætar kartöflur, þurrkuð bláber, þurrkuð hindber.

Næringargildi Yfirlýst greining vörunnar

Crude Prótein 8.0%, Crude Fat 5.0%, Crude Fibre 0.5%, Crude Ash 3%, Raki 84%, 73 kcal/100g

Viðbætt næringarefni Vítamín, steinefni og önnur næringarefni

Vitamins Vitamin A 10,000 IU/kg Vitamin D3 750 IU/kg Vitamin E 150 IU/kg Taurine 1,000 mg/kg Trace Elements Copper (as copper(II) chelate of amino acids hydrate) 1.125 mg/kg Copper (as copper(II) sulphate pentahydrate) 1.75 mg/kg Iodine (as potassium iodide) 1.782 mg/kg Manganese (as manganese chelate of amino acids hydrate) 2.1 mg/kg Manganese (as manganese (II) oxide) 7.7 mg/kg Manganese (as manganous sulphate monohydrate) 4.48 mg/kg Zinc (as zinc chelate of amino acids hydrate) 9 mg/kg Zinc (as zinc sulphate monohydrate) 21.3 mg/kg Selenium (as sodium selenite) 0.018 mg/kg Sensory additive: natural flavour

Hvernig er best að skipta yfir í nýtt fóður?

Almennt er mælt með að skipta hægt um hunda- eða kattafóður til að setja ekki maga og meltingakerfi dýranna í uppnám. Almennt er mælt með að gera það yfir 7-10 daga.

Hér er tillaga að 7 daga plani til að skipta yfir í nýtt hunda eða kattafóður:

  • Dagur 1 – 10% nýja fóðrið / 90% gamla fóðrið
  • Dagur 2 – 20% nýja fóðrið / 80% gamla fóðrið
  • Dagur 3 – 30% nýja fóðrið / 70% gamla fóðrið
  • Dagur 4 – 40% nýja fóðrið / 60% gamla fóðrið
  • Dagur 5 – 60% nýja fóðrið / 40% gamla fóðrið
  • Dagur 6 – 80% nýja fóðrið / 20% gamla fóðrið
  • Dagur 7 – 100% nýja fóðrið

Ef gæludýrið er með sögu af meltingavandamálum er mælt með að skipta enn hægar yfir í nýtt fóður.

Algengar spurningar

Hvers vegna velja svo margir Taste of the Wild?

Taste of the Wild er hveiti- og kornlaust fóður sem gæludýraeigendur víða um heim treysta. Það er þróað með vísindalegri nálgun, byggt á náttúrulegri fæðu villtra dýra og inniheldur alvöru kjöt sem fyrsta innihaldsefni – ekki fylliefni eða óskilgreindar dýraafurðir.

Er þetta fóður næringarfullkomið samkvæmt alþjóðlegum stöðlum?

Já. Allar formúlur uppfylla bæði AAFCO og FEDIAF staðla og innihalda taurín, vítamín, steinefni og andoxunarefni sem styðja við hjarta, meltingu og ónæmiskerfi.

Hvar er Taste of the Wild framleitt?

Í Bandaríkjunum, í fjölskyldureknum verksmiðjum með strangt gæðaeftirlit og fullan rekjanleika á öllum hráefnum. Gæði og öryggi eru í forgangi – alltaf.

Hvers vegna notar Taste of the Wild ekki hveiti eða maís?

Því þessi hráefni eru oft ódýr, einföld og mjög unnin kolvetni sem veita litla næringu. Taste of the Wild notar í staðinn næringarrík flókin kolvetni eins og sætar kartöflur og baunir sem gefa stöðuga orku og stuðla að betri meltingu.

Hvað með kornlaust fóður og DCM?

FDA hefur frá árinu 2018 rannsakað hvort tengsl séu milli tiltekins fóðurs, oft kornlauss, og hjartasjúkdómsins DCM hjá hundum. Þeim rannsóknum er ekki lokið og orsakasamband hefur ekki verið staðfest. DCM er að stórum hluta erfðatengdur sjúkdómur, og þegar kemur að fóðrinu skiptir mestu að það sé vel samsett, með gæða dýrapróteinum, nægum amínósýrum og tauríni.

Taste of the Wild byggir á alvöru kjöti sem fyrsta innihaldsefni og notar meðal annars sætar kartöflur í stað hveitis og maís. Allar uppskriftirnar eru heilfóður sem uppfyllir næringarviðmið AAFCO og framleiðandinn bætir tauríni í þær allar. Lestu yfirlitið okkar um DCM og kornlaust fóður.

Hvers vegna treysta þúsundir gæludýraeigenda þessu vörumerki?

Því þeir sjá raunverulegan mun: glansandi feld, betri melting, meiri orka og minni húðvandamál. Þetta er fóður sem virkar – ekki bara markaðssetning.

Hvers vegna skiptir máli að alvöru kjöt sé fyrsta innihaldsefni?

Því það tryggir að fóðurið sé próteinríkt, bragðgott og næringarríkt. Alvöru kjöt = betri upptaka, meiri orka og heilbrigðari líkami. Þetta er ekki bara innihald – þetta er gæðaloforð.

Hvaða próteingjafar eru notaðir?

Taste of the Wild notar fjölbreytt úrval af hágæða próteinum eins og bison, lax, villibráð og kjúkling – allt valið með tilliti til bragðs, meltingarhæfni og næringargildis.

Hentar þetta öllum lífsstigum?

Já. Taste of the Wild býður upp á jafnvægið fóður fyrir öll lífsstig – frá ungum til eldri dýra. Þú getur treyst því að næringin sé rétt – alltaf.

Af hverju ætti ég að skipta yfir í Taste of the Wild í dag?

Því þú vilt ekki bara fóður – heldur næringu sem skilar árangri. Taste of the Wild er þróað með vísindum, byggt á náttúru og treyst af milljónum. Það er einfaldlega betra val.